Seigla ehf. séhæfir sig í bátasmíði fyrir þær erfiðu aðstæður sem Norður Atlantshafið býður upp
á. Seigla ehf. er með breitt úrval af bátum sem geta þjónað flestum þörfum allra sjómanna. Bátalínan,
“Seigur”, fæst í ýmsum útfærslum, 6 m til 15m. Allir bátar byggjast á ákveðnum grunni sem síðan er bætt
á til þess að tryggja að hver bátur uppfylli allar óskir kaupenda, þannig eru allir bátar frá Seiglu sérstakir. Fellikjölur er
staðalbúnaður í öllum stærri bátum frá Seiglu sem gerir bátana, án nokkurs vafa, þá meðfærilegustu á
markaðinum í dag. Seigla hefur unnið að breytingum og nýsmíði síðan 1994,
aðalega fyrir Íslenskan markað sem er mjög krefjandi markaður þar sem Íslenskir sjómenn eru vanir að starfa við mjög erfiðar
aðstæður. Þetta hefur vakið athygli, sérstaklega erlendis, þar eftirspurn eftir bátum frá Seiglu fer nú ört vaxandi.